Bloggsíðan
okkar
Google kort
Hús í orlando
Hús á Florida
Til leigu á Florida
| |
Fyrsti BMW bíllinn sem ég eignaðist var BMW
320, 6 inline og með blöndungi, þetta boddy (E21) kom fyrst á
markað 1977 og þetta var arftaki 2002 bílsins (ekki árgerðin). Næsta BMW
pantaði ég hjá umboðinu í júlí 1981 og það var 6 mánaða
afgreiðslufrestur, í janúar 1982 kom svo bíllinn til landsins.
Þetta var BMW 323i, 5 gíra
beinskiptur, 6 cylendra og með beinni innspýtingu, 132 kW
(179 PS) Sá næsti var 323i
1984, sjálfskiptur og með leðurinnréttingu, þennan bíl keypti af
pabba þegar hann fékk 530i bílinn 1988. 1994 keypti
ég svo 530i af B&L, þessi bíll kom til landsins 1989 og var með
öllu, þessi bíll reyndist mér rosalega vel, ég seldi hann 1999 eða
þegar ég flutti inn 540i frá
Þýskalandi. 540 bíllinn er með 4.4 lítra V8, ég asnaðist til
að selja hann 2002 og sé verulega eftir honum. Um sumarið 2002
fór ég og konan til Þýskalands og leituðum að 328i
bíl, kröfurnar voru miklar og þetta tók hrikalegan tíma og bras, ég
var búin að liggja á netinu í margar vikur og skrá niður líklega
bíla. Það fór nú svo að eftir að vera búin að keyra 1500 km
eyða fimm dögum í þessa leit þá keyptum við fyrsta bílinn sem við
skoðuðum. |
Þetta eru svo bílarnir mínir sem einhverju skipta og mér
hefur þótt vænt um. Fyrsti bíllin minn var Mazda
818 coupe 1600cc. Á þessum bíl
var gert ýmislegt glæfralegt, 165 km/kl var algengt að sjá á hraðamælinum
sumarið 1974, ég man vel þennan tíma. Ekki má gleyma að á þessum bíl
náði ég í hana Evu mína, var búin að rúnta með þessa stelpu í margar vikur
þegar hún loksinns bauð mér inn vorið 75. Mazdan var svo seld þegar
fyrsta íbúðin var keypt, Viggo Sig. handboltamaður keypti bílinn, ég man
hvar hann skoðaði gripinn, Eva var á bílnum í MA og við hittumst á planinu
við skólann og gengum frá þessu. |
Aðalgeir bróðir pabba seldi mér Fiat
132, þessi þóttir brjálað kraftmikill á þessum tíma. Ekki var óalgengt að
V8 bílarnir frá Ameriku þyrftu að horfa á FIAT merkið á afturendanum á
þessum "Ferrari". (Ekki gleyma að Ferrari er bara Fíat).
Þessi FIAT vél var með fyrstu bílvélunum sem komu með tveimur
yfirliggjandi knastásum.
Gírkassinn í bílnum var mjög skemmtilegur, auðvelt að skipta á miklum
snúningi og flott væl og meters spólrákir eftir á malbikinu. :) |
Hér eru svo tveir gráir, 316 bíllinn á 18" og þetta fer
honum bara vel. |
|
Þá er kominn einn nýr, sá
minnsti sem ég hef eignast en bara laglegur bíll, 316i með 1900 vél og
tölvukubb. Orginal er vélin 104 hp. en með þessum kubb er hún
um 116 hp. Ég hef ekki átt svo lítið númer (vélastærð) af
BMW áður, ég hef alltaf átt stærsta mótorinn í hverri línu nema
530 bílinn, þegar hann kom var til einn stærri eða 535, 1994 kom svo
540 í E34. Auðvitað er M bíllinn með stærri mótor en
svoleiðis bíl hef ég ekki átt þó svo stefnan sé sett á hann.
Þá er búið að kaupa einn enn, nú er það 330
sem ég fann á Mobile.de og hann Smári sótti fyrir mig, það koma betri
myndir þegar hann kemur. Nú er búið að selja þann litla og var ekki
mikið mál, ein auglýsing í Fréttablaðinu tvö símtöl, það skemmtilega við
þessa sölu er að frænka mín keypti bílinn. Svo er kominn einn
nýr snattari fyrir Evu, Tucson 2005 |
|
| |
Verslanir
Orlando Sentinel
|