Jæja, þá fann ég loksins Honduna. Heiðars fyrsta hjól var nefnilega
Honda C100 50cc. Þetta var rauð kvenhonda sem er mér vel minnistæð, ég man
alltaf eftir að löggan elti okkur í sandbingjunum ofan við ÚA. Heiddi þá
fjórtán ára gamall fór
nefnilega að keyra áður en hann fékk prófið og Doddi "Storkur" lögga var á
ferðinni og sá okkur. Mig minnir að mamma hafi talað við Dodda og leyst málið
þarna um kvöldið, ég hljóp nefnilega skelfingu lostinn heim til mömmu.
Hjólið fann ég á eBay og var það í Boston, ég er búinn að fá "Certificate of
title" manual og lykilinn, hjólið kom til mín eftir að trailerinn góði
fór í skip. Núna er bara eitt hjól í skúrnum hér í Goostry, ég fer svo
örugglega á stað í haust í leit að fléri hjólum.
Ég er verulega sáttur við að hafa fundið þetta hjól, minningin um fyrsta
hjólið er mjög sterk og ekki má gleima að ég keyrði "þetta" hjól hjá Heidda
aðeins ellefu ára gamall, hann var nefnilega ekki sinkur á að lána og leyfa
strákum að prófa hjólin sín.