Heiðar Þórarinn Jóhannsson fæddist á Akureyri 15. maí
1954. Hann lést af slysförum sunnudaginn 2. júlí 2006. Heiðar
var ókvæntur og barnlaus. Foreldrar hans voru Jóhann Guðmundsson f. 13.maí
1917 dáinn 14. mars 1993 og Freyja Jónsdóttir f. 17. september 1923 dáin 15.
júní
1999. Eftirlifandi bræður Heiðars eru, Jón Dan kvæntur Ruth Hansen og eiga
þau þrjú börn, Rúnar Hafberg kvæntur Jónheiði Kristjándóttir og eiga
þau þrjú börn og Guðmundur kvæntur Evu Ingólfsdóttir og
eiga þau fjögur börn. Einnig eignuðust Freyja og Jóhann eina dóttur
sem dó á fyrsta ári. Heiðar lærði
ketil og plötusmíði í fjölskyldufyrirtækinu
Sandblæstri og málmhúðun. Á yngri árum var Heiðar til sjós mestan hluta
sem kokkur enda var eldamennska ein af hans ástríðum. 1988 kom Heiðar aftur
til starfa hjá Sandblæstri og starfaði þar sem verkstjóri til dauðadags.
Heiðar var virkur meðlimur í Bifhjólasamtökum lýðveldisins Sniglum og
einn af stofnendum samtakanna, enda var Heiðar af mörgum talinn vera mesti mótorhjólamaður
Íslands.
Útför Heiðars fór fram frá
Glerárkirkju þriðjudaginn 11. júlí.
Hér eru svo nokkrar myndir af kappanum.