Í Magic
Kingdom kynnist maður umgjörð og andrúmslofti
gömlu, góðu daganna í Bandaríkjunum. Gestum er boðið
í frumskógarævintýri, brugðið er upp myndum úr sögu
Bandaríkjamanna, leiddar eru fram á sviðið ýmsar víðfrægar
persónur úr kvikmyndum og myndasögum Walt Disney,
farið er út í geiminn og staðið augliti til
auglitis við geimverur.
Í Epcot
Center er rakin saga mannlífs á jörðinni,
menningar og vísindauppgötvana, horft er til framtíðar
og brugðið er upp myndum af sérkennum ýmissa þjóða
heims.
Í Disney-MGM
Studios fá gestir að kynnast því á margvíslegan
hátt og með ótrúlegum tæknibrellum hvernig
kvikmyndir verða til og kynnast af eigin raun ýmsum
persónum og atburðum úr víðfrægum kvikmyndum.
Animal
Kingdom í Disney World. Þetta er töfraheimur,
helgaður veröld dýranna. Þarna má kynnast risaeðlum
frá forsögulegum tíma, dýrum nútímans og ímynduðum
dýrum. Þetta er stórfenglegur dýragarður þar sem fólk
fær að kynnast dýrunum og jafnframt hættunni sem steðjar
nú að mörgum þeirra.
Í Walt
Disney World eru margir skrúðgarðar og útivistarsvæði
og tilvalið að verja a.m.k. einum sólskinsdegi í
vatnsleikjagörðunum Blizzard Beach og River Country,
í Typhoon Lagoon eða á Discovery Island og Pleasure
Island.
Universal
Studios Florida. Galdrabrögð kvikmyndanna;
gestir hitta „í lifanda lífi“ víðfrægar persónur
úr kvikmyndum. Meira en 50 fullbúnar sviðsmyndir,
veitingahús og verslanir.
Islands
of Adventure. Skemmtigarður hjá Universal
Studios Florida; fimm ævintýraeyjar í manngerðu stöðuvatni.